Færsluflokkur: Matur og drykkur
22.5.2007 | 09:32
Útfærsla af jólasalati Jamie Oliver
Samantekt: Hér er einfölduð útgáfa að þessu fráæra salati. Fullkomin máltíð til að njóta á heitu sumarkvöldi og ekki skemmir fyrir að hafa glas af köldu hvítvíni með
Uppskriftin miðast við 2-4
Hráefni:
4 stk. 100gr buffalo Mozzarella boltar
4 stk. Klementínur (mandarínur)
Um 300gr blönduð salatblöð, nota það sem hendi er næst
salt og pipar úr kvörn
Ólífu olía
Balsamic edik
Hrá skinka(Parma Ham)
Fersk minnta (má sleppa)
Aðferð: Gróflega hlutið niður ostinn og klementínurnar og blandið saman í skál ásamt salatinu.
Í jöfnum hlutföllum blandið saman Ólífu olíunni og edikinu og blandið öllu saman.
Saltið og piprið eftir smekk.
Eftir að salatinu er skammtað á diska bætið við nokkrum sneiðum af Parma Ham
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 09:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)