Var að enda við á horfa á Írland vera rassskellt af Frakklandi, ekki sérstaklega gaman á föstudags kvöldi. Alveg merkilegt hversu erfiðlega hefur gengið að skrifa upp á síðkastið, kannski að aldurinn sé farin að segja til sín.
Svo kemur sá dagur að maður ákveður að nú sé loksins komi tími til þess að fara að skrifa, sest niður í sófann, opna bjórinn og byrja, en hvað er þetta ekki neitt virðist koma upp í hugann og jafnvel eftir allan þennan hugsunar og orkudjús. Kannski að það hafi eitthvað með að ég er karlmaður að það sé mér erfileikum háð að koma orðunum frá mér því eins og allir vita þá hafa karlmenn aðeins takmarkaðan orðakvóta og ég er alveg viss um að ég er löngu búinn með þann kvóta fyrir daginn.
En svo mitt á milli alls kjaftæðisins áttaði ég mig á því að karlar geta náð sér í auka orðakvóta, einn bjór er um 500 orð þannig að núna á ég inni um 2000 orð þannig að það er eins gott að ég noti þau vel. Það er samt merkileg þegar maður byrjar að skrifa og heldur áfram án þess að hugsa (eitthvað sem Biggi hefur alltaf verið góður í  ) að þá virðist maður geta haldið áfram að bulla alveg endalaust eins og mér hefur tekist að þessu sinni, kannski að það sé miklu betra að nota aðferðina hans Bigga og hugsa ekki neitt.
Nóg um allt bullið, eins og ég sagði frá í síðustu færslu minn þá vorum við hjónakornin boðin í veislu til heiður Forsætisráðherra Íslands og verð ég að segja að Geir Haarde kom mér skemmtilega á óvart, hann var bara nokkuð skemmtilegur á 4 rauðvínsglasinu en var farin að rausa frekar mikið á því sjötta . Eina sem ég er ekki viss um er hvort það var ég eða Geir sem drukkum þessi rauðvínsglös en ef ég tek inn í dæmið hvernig mér leið daginn eftir þá er líklegra að það hafi verið ég.
Nóg í bili..... Dabbi
Komin tími til þess að fara að byrja að bulla, það hefur verið svo mikið að gera undanfarið að ég hef ekki einu sinni getað hugsað um að skoða bloggið mitt, hvað þá að skrifa eitthvað hérna.
Ég, konan og litla skottið skruppum til Barcelona í síðustu viku og var það með eindæmum ánægjuleg för. Fórum meðal annars í dýragarðinn og á Camp Nou og var dóttir mín ekki á þeim buxunum að yfirgefa völlinn fyrr en einhver fótbolti yrði spilaður. Ekki skemmdi fyrir að geta horft á Ísland spila á móti Spáni, hefðum samt átt að vinna leikinn.
Í kvöld erum við hjónakornin boðin í mótöku til heiðurs Forsætisráðherra Íslands, vonandi að það verði eitthvað áhugavert fólk í þessu boði.
Mikið var, nú er biðin næstum á enda og maður getur farið að hlakka til að setjast fyrir framan skjáinn að horfa á boltann. Ég hef verið að fylgjast með kaupum og sölum í úrvaldsdeildinni og virðist sem nokkrir áhugaverðir leikmenn hafi bæst við en mikið fannst mér leitt að sjá Henry fara frá Arsenal, einn skemmtilegasti leikmaður sem hefur sést í enska boltanum.
Annað er það sem ég hef spáð í líkt og flestir sem fylgjast með boltanum en það er hverjir verði meistarar, ég held að flestir geti verið sammála hvaða lið verði í efstu 4 sætunum þó erfitt geti verið að segja hver hreppi efsta sætið. Eitt sem mér finnst skjóta skökku við er hversu margir hafa afskrifað Arsenal, vissulega hafa þeir ekki verið upp á sitt besta síðustu tvö tímabil en ef þeir bæta sig í leikjum á móti liðum eins og Bolton, Blackburn og öðrum liðum sem eru yfirleitt um miðja deild þá held ég að þeir eigi mjög góða möguleika á titlinum. Á síðasta tímabili náði Arsenal í 6 stig á móti Man Utd, 4 á móti Spurs, 3 á móti Liverpool og 2 á móti Chelsea þannig að ef þeir gera eitthvað svipað ættu þeir að eiga góða möguleika.
Eins og flestir hafa séð þá hefur ekki verið mikið um skrif hjá mér upp á síðkastið. Fullt að gera hjá kallinum og engin tími unnist til að bulla. Ég er í augnablikinu að vinna í því að leita að skóla þar sem ég get stundað fjarnám, hægara sagt en gert.
Annars er allt við þetta sama hérna hjá mér, ég les blöðin, drekk kaffið og reyni að láta mér ekki leiðast í vinnunni. Ekki ætla ég að fara að endurskrifa hvað ég var að lesa á www.mbl.isþar sem að ég geri ráð fyrir að fólk get gert það sjálft.
Ég ætla að halda áfram að lesa og sjá hvort ég sjái eitthvað áhugavert.
Andskotinn hafi það, á maður bara að rigna í kaf. Ég hef verið svo niðurdreginn upp á síðkastið að ég hef ekkert geta skrifað. Sumarið hérna er búið að vera svo slæmt að það er hætt að vera fyndið, það er búið að rigna samfleytt í yfir 50 daga á flestum svæðum hérna á Írlandi.
Endilega sendið mér eitthvað af sólinni frá Íslandi....
Eins og ég var búinn að lofa þá ætla ég að reyna að segja ykkur frá ferðalagi mínu. Fyrir næstum tveimur vikum síðan hélt ég ásamt 10 öðrum til Spánar, nánar tiltekið tiltekið til bæarins Calpe. Í þessum hóp voru 3 karlar og 8 konur þar af voru 4 stelpur á aldrinum 2-4 ára. Þannig að jafnvel áður en lagt var af stað var flestum ljóst að þetta væri hættuför . Eins og áður sagði hélt þessi fagri hópur frá Dublin áleiðis til Alicante laugardaginn 23 júní síðastliðinn. Þegar þangað var komið ókum við sem leið lág til Calpe og þegar þreyttur ferðahópurinn komst á leiðarenda varð hann ekki fyrir vonbrigðum.  (Myndin er ekki sérlega góð)
Ég held að allir í hópnum geti verið nokkuð sáttir með þessa viku er við áttum í þessum vinalega bæ þrátt fyrir moskítóbit, bakverki og gelt í hundum. Ég get mælt með svona fríi, sérstaklega fyrir fjölskyldufólk.
Ég fer kannski nánar út í ferðina síðar...
Bara mjög stutt færsla til þess að láta ykkur vita að ég er kominn aftur. Hef verið í fríi síðustu tvær vikurnar og hef ekki litið á netið á þeim tíma. Var á Spáni síðastliðna viku nánar tiltekið í Calpe. Skrifa meira um það síðar.
Meyja: Þú ert nógu góður til að gefa allt af þér, jafnvel þótt þú sjáir ekki í hvað orkan fer. Þessi kostur mun gera það að verkum að á næstu vikum færðu nýja vinnu, kauphækkun eða bónorð.
Ég er ekki viss um að konan yrði mjög hrifin ef það yrði bónorð
Veðrið hérna hefur verið svo gott undafarna daga að ég hef ekki getað annað en sitja út í garði með fótboltadjús í hendi í staðin fyrir að sitja fyrir framan tölvuna. Annars er allt við það sama, er búin að skrá mig í ræktina og ætla að skella mér eftir vinnu í dag. Ég lét loks verða af þessu heilsuræktarátaki mínu eftir að hafa orðið leiður á að hlusta á mömmu kvarta yfir því hversu feitur ég væri orðinn. Hún hefur nú alltaf verið svo uppörvandi hún móðir mín
Skrifa meira þegar byrjar að rigna
Ekki veit ég hvort Íslendingar sáu eða komi til með að sjá þennan umtalaða þátt um Díönu prinsessu, þáttinn sem synir hennar báðu sjónvarpsstöðina Channel 4 að hætta við að sýna. Ástæðan fyrir öllu fjaðrafokinu var að í þættinum yrðu sýndar myndir er teknar voru í göngunum andartökum eftir slysið.
Hérna er hlekkurinn að síðunni sem fjallar um þáttinn.
http://www.channel4.com/culture/microsites/D/diana/?intcmp=homepage_flash
Ég hef lesið nokkur blogg þar sem fólk talar um íslenska tungu og eitt og annað er veldur fólki áhyggjuefnum í sambandi við íslenska málið. Eitt af þessu hlýtur að vera nýyrði og áhrif erlendra mála í okkar daglegu samskiptum. Eitt er það orðið sem fer virkilega í taugarnar á mér, írónía. Ekki veit ég hvort þetta orð er almennt notað í íslensku máli en ég komst í vandræði á sínum tíma fyrir að lýsa vanþóknun minni á þessu orði.
Þetta gerðist er ég lagði stund á bókmenntafræði í Háskóla Íslands. Ekki man ég hvaða áfangi þetta var en líklega hafði það eitthvað með stefnur í bókmenntafræði að gera. Sú sem sá um að kenna þennan áfanga var Helga Kress, þarna sem ég sat og hlustaði á fyrirlesturinn byrjaði Helga að tala um íróníu og fannst mér það frekar léleg íslenska þar sem eitthvað sagði mér að við hefðum fullkomlega gott og gilt íslenskt orð í stað íróníu, orðið kalhæðni.
Það eina sem ég hafði upp úr krafsinu er ég benti Helgu á að hvort ekki væri betra að nota orðið kaldhæðin í stað íróníunnar var að ég ætti að hætta þessum fíflalátum.
Mér fannst stjörnuspáin mín alltof fyndin til þess að birta hana ekki.
Meyja: Þú ert vinsæll og þegar klappað er fyrir þér, þá áttu það skilið. En þú ert hikandi stjarna og hógværð þín er heillandi. Ekki láta hana stela frá þér kastljósinu. Baðaðu þig í því. Þú átt það skilið.
Langaði bara til þess að deila þessu ljóði með ykkur
23.12.2012
Seconds to midnight
and seven stars
intensive feeling
wherever you are.
Heaven and earth
holding hands
walking together
to the promise land.
Mercury and Venus
becoming one
flowing together
for ever and ever.
Minutes after midnight
everything gone
another beginning
wont take long.
Sun is rising
on another day
how will it go
I can not say.